12júní

ORLANDO


-Bókað verður í vikunni-

...Er ekki kominn ferðahugur í hópinn?

...Þá held ég við eigum eftir að vera flott!

Stykkishólmi í rjómablíðu, þann 12.06.07
Skrifað klukkan 21.21
Sara Sædal Andrésdóttir
12. júní 2007 klukkan 21:15
Olga Árnadóttir
2 athugasemdir
28apríl

Er ekki komin tími á smá update!?

 Í fréttum er þetta helst..... 

  • Allt gott og geðveikt að frétta úr Hólminum.
  • Heima er alltaf best eins og maðurinn sagði, þótt maður sakni nú auðvitað Dk líka. Kaupmannsins góða, gula gamla, Tuborg, Litlu hnoðboltanna okkar og så videre.....
  • Sara Sædal elur manninn á sundlaugarbökkunum í rauðum sundbol með rautt flotholt í annari og Baywatch flautuna í hinni, og stúlkan er víst alveg ógó happy með sitt hlutskipti þar að eigin sögn. Einnig hefur sést til hennar hlaupandi upp um holt og hæðir eins og óð sé.
  • Ellan okkar er orðin ósvikinn sjóari eins og þeir gerast verstir,byrjuð að rífa kjaft og læti, en það er víst betra að geta gert það þar sem hún er oftar en ekki eina kvk um borð. Enginn miskunn þar á ferð!

  • Ég held mig bara upp á Dvaló með gamlingjunum og svei mér þá ef ég verð ekki skírmæltari með hverjum deginum.
  • Annars er búin að vera ansi "blaut" tíð hjá okkur stöllum undanfarið, alveg spurning um smá pásu núna. Fara að huga að einhverjum uppbyggjandi hlutum í staðinn.

  • Pullurnar á Bensó klikka seint, en okkur til mikillar undrunar er ekki enn farið að selja bjór þar (Hanna, Finnur!!). En það er víst verið að ræða þau mál núna í kjölfar kosninga, svo við höldum enn í vonina.
  • Það er farið að vora í Hólminum, öllum til mikillar gleði, 15° hiti í dag. Það er í lagi. 
  • Ábyggilega gott sumar í vændum,engin stór plön nema kanski ein lítil Florida ferð hjá sumum!?
  • Nenni ekki meira í bili..... 
  • .....en auglýsi hér með eftir "Ansíu Pansíu Prinsessu"


Hvernig er á mölinni? Komdu nú með einhverjar krassandi sögur af innflytjendunum, við höfum svo gaman af þeim! Er Dessi Bjarna nokkuð búinn að sækja um landvistarleyfi?

p.s. Komnar inn myndir síðan um helgina, Elín er alltaf jafn dugleg.

Gleðilegt sumar

..olGa..

28. apríl 2007 klukkan 14:56
Olga Árnadóttir
5 athugasemdir
05apríl

-Lćkker-

HEJSA!!!


Hvordan går det? ... Já, já ég er ekkert búin að gleyma dönskunni! Bara að tjékka!

Elin. Þessi er fyrir þig: http://www.ga-jol.dk/375
(Veldu 3. efstu- Se filmen)

Olga. Þessi er fyrir þig: http://nikogjay.dk/window.html
(Veldu VIDEO efst og svo bara að vild. BOING er sterkt)

Ansía Pansía P. Þessi er fyrir þig: http://www.smart-art.at/agatha-christie/biographie/agatha-e.htm

Njótið stelpur mínar!
Gleðilega páska!
Sjáumst á balli...

Sara S.

05. apríl 2007 klukkan 16:35
Olga Árnadóttir
2 athugasemdir
04febrúar

“Jeg har lavet přlser”

Daginn!
Allt gott að frétta héðan. Búnar að vera netlausar lengi, erum mikið að spá í að banka uppá hjá nágrönnum okkar og biðja þá um að fá sér aðeins öflugri tengingu, þetta gengur bara ekki lengur. Við erum fyrst núna að taka Danina í sátt eftir þennan ljóta handboltaleik um daginn!! Vorum frekar pirraðar og skulum því ekkert ræða það frekar. Best að gleyma þessu bara. 

Lífið á leikskólanum gengur stóráfallalaust.Frekar þægileg vinna og fínasta samstarfsfólk. Dagurinn samanstendur í stórum dráttum af því að teikna (prinsessur og Pippi hafa vinninginn þar), lesa, stoppa rifrildi, hugga, taka til, gefa að borða, klæða allt liðið í og úr, í og úr og aftur í og úr og jafnvel enn aftur í og úr og svo má auðvitað ekki gleyma blessuðu klósettstandinu sem er stór partur af þessu öllu saman! Þegar að þau eru búin að gera eitthvað í bleyjuna koma þau til manns, sakleysið uppmálað, og segja “Jeg har lavet pølser”. Þá eigum við Sara virkilega erfitt með okkur. Bráðnum á staðnum og kippum þessu í liðinn. Nú er ég orðin föst inn á yngstu stofunni, með 2-3 ára dúllunum,svo að ég fæ nóg af kúkableyjum. Jammí. Á meðan glímir Sara við óþekktina í eldri krökkunum, sem geta verið alveg snar. En það leynast nú virkilega skemmtilegir karakterar þarna inn á milli.
 
Átti einmitt athyglisvert samtal við einn lítinn gutta á leikskólanum um daginn. Var úti í gæslu, það var ískalt en samt smá sól. Það var eitthvað á þessa leið:
 

Jeppe: Má ég vera á tánum af því að það er sól?
Olga: Nei það máttu ekki, það er ekki komið sumar. Jeppe: Þú veist ekki hvað sumar er, þú kemur frá Íslandi!

Olga: Jú við höfum nú líka sumar á Íslandi.

Jeppe: Nú!? Af hverju heitir þetta þá Ísland? ( Góð spurning að vísu) 

Takk fyrir pent.Ekki mikil trú á Íslandi. Það lá við að ég yrði bara sármóðguð. Hvað átti strákgreyið svosem að halda. Nafnið segir jú allt sem segja þarf, ekki satt!?

Hanna, Finnur og krakkarnir eru flutt frá okkur. Við byrjuðum að sakna þeirra áður en þau fóru. En þau verða samt ekki mjög langt frá okkur, getum huggað okkur við það.Við erum að geyma húsgögn og dót fyrir þau svo nú er íbúðin okkar voða kósý. Ef einhver vill koma í heimsókn þá er um að gera að koma núna, erum með aukarúm.

Kristín kom í mat til okkar um daginn og svo var skellt sér á djammið eftir það í jólasnjókomu, nokkrar myndir frá því komnar inn í albúmið undir "Janúar 2007".

Þetta er orðið fínt held ég barasta snarasta
sælar
olGa

Merkilegir hlutir að gerast hérna...hún Afríku Anna ætlar að fá að klára þetta.

Jæja Gummi minn Amlín, kveikjum okkur nú í vindli og gleðjumst. Hann Kastró kallinn er á batavegi.



Viva la revolution!






04. febrúar 2007 klukkan 22:46
Olga Árnadóttir
12 athugasemdir
16janúar

Myndir!!!

Jæja Stelpur þá er komið af því....það eru komnar myndir. Olga ef þú ert ekki hrifin af e-h myndum þá veistu leiniorðið og getur tekið þær út.Glottandi 

Kveðja úr hólminum

Elín Hlæjandi
16. janúar 2007 klukkan 23:01
Olga Árnadóttir
3 athugasemdir
14janúar

Góðan daginn og gott nýtt ár!  

Jæja! Við komnar aftur til Danmerkur eftir dejligt jólafrí heima á Íslandi.
Það byrjar nú ekki eins rólega nú og það gerði hér þegar við fyrst komum. Brjálað að gera hjá okkur Olgunni við að skeina krökkum og reyna að tala við þau okkar frábæru dönsku. En þetta er ágætt alveg...dönskukennsla á launum. 

Pannan er þessa dagana í prófum. Hún situr einmanna heima allan daginn og bíður spennt efitr því að við komum heim til að mingla við. En því miður fyrir hana þá erum við frekar uppgefnar eftir daginn og leggjum okkur yfirleitt (já eða alltaf) svona í nokkra tíma þegar við komum heim. Þannig um kvölmataleytið er orðið kátt aftur í höllinni. Og þá er Pannan glöð.
 

Þar sem við erum komnar með vinnu þá fluttum við okkur yfir í kvöld-dönskuskóla sem er nú vart frásögufærandi. Fengum líka þennan frábæra uppþornaða kennara. Gamall, borugirtur, lítill karl með hvítt hár og hvítt skekk. Virkilega þurr og leiðinlegur. Svolítið eins og við værum komnar aftur í framhaldsskóla. Það virðist vera mikilvægara að svara rétt frekar en að geta sagt e-ð rétt. Meira helvítis kjaftæðið. 

En það er gaman að segja frá því að þegar við vorum búnar í tíma um daginn þá vorum við að bíða eftir strætó. Stór skóli og mikið af fólki í dönskukennslu og þ.a.l. voru svona 30 manns að bíða eftir þessum sama strætó. Við 2 og svo ca. 28 Asíubúar. Þetta var eins og fuglabjarg. Þau öll voða hress að tala saman og dansa og ég viet ekki hvað og hvað. En við auðvitað frekar cool og héldum bara coolinu og biðum þarna pollrólegar eftir nýlendustrætónum okkar. Svo kemur sá guli og allir bara ggggaaarrrrgggggggg!!!!!!!!!!!!! Og upp í strætóinn. Bílstjórinn var líka svona all svaðalega hress og fannst þetta voða spennandi. Spyr svo þegar við erum að labba inn; ,,Var I pa kursus? Var I dygtige? Hálfglottandi Danir þarna út um allt í strætónum. Við bara holy K!!! Drifum okkur nú bara að setjast niður og settum hetturnar á okkur...Hefði nú samt verið fyndið ef við hefðum svarað honum eins og hálvitar; ,,Ja, vi var rigtig dygtige. Vi fik ti.” 

Annars skín sólin hér í Sölleröd á þessum fallega laugardegi. Stefnan jafnvel sett á bæinn í kvöld. Þá bara svona rólegt rölt og jafnvel á kaffihús. E-ð dannað því við erum jú svo dannaðar. Ekkert fyllerís rugl neitt! 

Set inn myndir á næstu mínútum frá jólafríinu...


En það var verið að bjóða okkur í kaffi og köku hér í næstu íbúð. Þannig hafið það gott þangað til næst.....

 

Sara S.
14. janúar 2007 klukkan 00:33
Olga Árnadóttir
3 athugasemdir
20desember

God Jul

20. desember 2006 klukkan 22:52
Olga Árnadóttir
3 athugasemdir
09desember

09. desember 2006 klukkan 04:23
Olga Árnadóttir
Engin athugasemd
29nóvember

Glundrođi, gossip og gleđi!

Þá er komið að mér! Elín og Anna forðast það eins og heitann eldinn að pára eitthvað á þessa síðu svo að ég og Sara keppumst um þetta, höldum stundum ólympíuleika hérna út á túni til að skera úr um það hvor fær heiðurinn.Já Ellen við æfum stíft fyrir jólamótið. Ég vann hana í þetta skiptið enda er stelpan orðin samgróin tölvuskjánum, þar sem hún bombar niður heilu hrjáðu þorpin með ógnarstóru skotvopni, og rassinn er því orðin heldur þungur á henni blessaðri.

Eitthvað var lítið um tillögur að nöfnum á hundspottið okkar, var það svona augljóst að við eigum ekkert í þessum hundi? Ég vil nú samt útnefna Örnu Sædal sem sigurvegara og fær hún vegleg verðlaun þegar að við komum heim. Þannig er mál með vexti að það býr fín frú hérna fyrir neðan sem á þennann hund.Þessi ágætis frú er heldur mikið fyrir sopann víst eins og gengur og gerist hérna í Danmörku og þarna um daginn hittum við hana fyrir utan í stuði og vildi hún endilega að við myndum kynnast hundinum hennar, honum Peppe, svo að hann hætti að gelta á okkur. Áður en við vitum af erum við komnar með hundinn + nammið hans í hendurna og svo bara bæbæ! Svo við tókum hann hérna í heimsókn og viðruðum hann, aumingja hundurinn, honum veitti ekki af nýjum eigendum.

Annars er allt við sama heigarðshornið hérna...komin mikil jólatilhlökkun í okkur allar, get nú ekki neitað því! Þessi tilhlökkun er byrjuð að brjótast út í ansi undarlegri hegðun hjá sumum. Það verður svo gaman að koma heim og hitta alla. Sara fann svona líka sniðugt tilboð á netinu áðan þar sem ísl. sem fljúga heim með Icelandair eru boðin frí 15 kíló í yfirvigt. Svo nú komast jólagjafirnar örugglega með heim. Allir fá eitthvað fallegt.

Í kvöld ætlum við að vera menningarlegar og fara á tónleika með íslenskum flytjendum í Köbenhavn Jazzhus, þar ber helst að nefna meistara Pál Óskar. Hanna naighbour ætlar að skella sér með okkur í smá stelpukvöld. Svo koma Dóra og Þórður á morgunn og verða hjá okkur yfir helgina.

Endum þetta á smá myndapunktum úr danskri menningu:


Þetta eru danskar "æbleskiver", mjög vinsæl jólahefð hér í landi. Baldur og Ásta Lísa komu færandi hendi með heitar eplaskvíur, sultu, flórsykur og síróp til að leyfa okkur að smakka í gær. Og þetta bragðaðist alveg rosalega vel. Pokinn af þessu kostar bara 10 kr danskar í Netto, erum að spá í að kaupa nokkur tonn og hafa þetta í matinn fram að jólum.



Þetta er "Jokeren", heitasti rapparinn í DK. Gamall dóphaus sem náði að rétta sig við. Harður gaur en þó ekki í miklu uppáhaldi í Palads.




Og endum þetta svo á sæta parinu úr "Vild med dans" þeim Simoni Mathew og Viktoríu sem dönsuðu sig inn í hjörtu allra Dana í vetur, en unnu þó ekki. Okkur til mikillar gremju.

Þar hafið þið það! Svona aðeins að sýna ykkur hvað er að gerast í DK.

Kæmpestor hilsen
olGa í jólaskapi

29. nóvember 2006 klukkan 21:00
Olga Árnadóttir
7 athugasemdir
23nóvember

Ţá varđ kátt í höllinni.....

Já, þá er að koma desember. Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt! Frekar óhugnalegt. Það er minna en mánuður í að við, Elín og Olga komum heim. Við komum 15. desember en Anna kemur ekki fyrr en þann 19.

Skólinn gengur fínt...lærum pottþétt eitthvað á þessu.

Við Olga fengum svokallað “vikar” starf hér, á 2 leikskólum í nágrenninu. Það er svona afleysingarstarf. Þá er bara hring í okkur þegar vantar. Hún Hanna hjálpaði okkur við að finna þetta. Hún þekkir þetta allt saman. Gott að hafa smá sambönd. Fórum í gær og töluðum við stýrurnar og það var hringt strax í morgun. Þannig maður reif sig á lappir fyrir allar aldir og fór á leikskólann frá kl. 9-15.30. Teiknaði um 20 myndir, bjó til um 20 gogga, því auðvitað vildu allir eiga sitt eintak, kenndi börnunum að spila fótbolta og reyndi svo að tala við börnin og skilja þau. Allir voðalega vinalegir og þetta var hinn fínasti dagur. Svo bíður maður bara efir næstu hringingu.

Hér er víst mjög vinsælt að eiga hund. Þú færð einvern styrk ef þú átt hund. Veit samt ekki alveg hvernig það gengur fyrir sig. Liggur alveg við að önnur hver manneskja sem þú mætir á göngu er með hund. En allavega, þá ákváðum við að fá okkur eitt kvikindi. Bara svona til að hafa ástæðu til að ryksuga og þrífa. Fórum á mánudaginn og keyptum okkur eitt stykki. Hann var líka á tilboði þannig þetta voru kjarakaup. Svo er Anna búin að lofa að fara með hann út að labba. Erum ekki búnar að skýra hvutta þannig endilega komið með komment um nafn. Takk.


Stoltir eigendur...

Pössuðum krakkana fyrir Hönnu og Finn í gær. Fengum mjög gott lasagna að borða. Það besta sem ég hef smakkað hingað til. Verð nú eiginlega að fá uppskriftina. Börnin sofnuðu snemma þannig þetta var bara kósý hjá okkur stelpunum, í heitri íbúð.
 Hjá okkur er alltaf ískalt. Erum ekki alveg að skilja þessa ofna hér. Erum alltaf með rautt nef og kaldar tær. Ekki alveg nógu gott. En smá kuldi drepur engan. Anna og Elín fóru í göngutúr eitt kvöldið til að stela smá efnivið í jólakrans. Gekk svona líka vel og útkoman varð þessi:


Ekki svo slæmt...

Svo ákváðum við líka að ættlæða 2 börn. Það virðist vera í tísku núna. Tókum 2. Það var líka tilboð eins og með hundinn. Þetta var svona 2 fyrir 1 tilboð. Maður er alltaf að græða....jááhhh!

Stoltar mæður...


Svo lillinn okkar...

Hún Olga segir ykkur svo í næsta pistli hvar við fengum hundskrattann!

Er að frjósa úr kulda, get þetta ekki lengur. 

Verð að hringja í píparann!

Hafið það gott
Sara Sædal

23. nóvember 2006 klukkan 03:00
Olga Árnadóttir
5 athugasemdir

Ađalvalmynd

Auglýsing

Atburđarteljari

Símanúmerin okkar

Anna 004550206096
Elín 004523453601
Olga 004529477116
Sara 004524857061

Heimilisfangiđ

Sölleröd Park, Block 11, Lejlighed 23
2840 Holte
Köbenhavn
Danmark

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

Könnun

Hvort er betra á brauđ???

Sendiđ okkur sms í danskanúmeriđ...frítt